

Þessari bloggsíðu hef ég haldið út síðustu sjö árin (tæplega), en nú er blogg að linni. Hef sett in næstum þrjú þúsund færslur og fengið mun fleiri athugasemdir. Kærar þakkir fyrir lesturinn og mikil og góð viðbrögð.

Þessa gagnslausu staðreynd fékk ég senda


og ég bara spyr, kannast einhver við að hafa haft samband við Hagkaup með ósk um að búðin í Skeifunni væri opinn allan sólarhringinn í desember?
Látum ekki hafa okkur að frekari fíflum - kaupum inn annars staðar
Arabískur kjúklingur
8 hlutar kjúklingur
1dl espresso kaffi
100g sveskjur
100g þurrkaðar apríkósur
50g ljósar rúsínur
6dl hvítvín eða mysa
1 kanilstöng
5cm engifer í sneiðum
3 stór hvítlauksrif
salt og pipar
Allt í ofn, kjúklingabitana efst í 1/2 klst. við 200°C.
Borið fram m. salati m. hnetublöndu, kúskús, pítubrauði og hummus.
Hnetu- og Kóríanderblanda
1msk heslihnetur malaðar og ristaðar
1msk sesamfræ + kóríanderfræ ristuð
1 tsk cumin duft
1 tsk salt
hnífsoddur af chilidufti
Blöndunni dreift yfir salat
Salatsósa: olía, sítrónusafi, salt/pipar
Það stóð til að taka mynd af réttinum en því miður varð ekkert af því....
Frakkar sóttu að fornum sið,
Fáskrúðfjörðinn fríða.
Fengsæl sóttu fiskimið,
og veðráttuna blíða.
Nú er öldin önnur hér,
öngva frakka að finna.
Hálfur frakki þó kannski er,
fransmönnum að sinna.
Þó á vorin verðum við,
vör við komu Berta.
Þá býðst okkur að góðum sið,
súkkulaði og terta.
höf: Agnar og Jóna


Takk fyrir allar gagnslausu frönsku staðreyndirnar, þær komu sér vel í bráðskemmtilegu matarboði
Mig vantar aðstoð. Fyrir matarboð á laugardaginn vantar mig nokkrar vitagagnslausar franskar staðreyndir. Viltu senda mér línu

Það fór því miður fram hjá mér að við vorum tilnefndir til Edduverðlaunanna. En allavega gaman að fá verðlaunin. Ég geri ráð fyrir að Ragnar láni okkur styttuna í nokkra daga......
Kosturinn eyjar gæzku gras,
er græn á vorin og fögur um fas,
af hafinu hleypur hvalanna as,
hópurinn óteljandi.
Lystugt er í landi.
Einatt segir þar krummi kras,
kringum eyna fugla vas,
úti byrgt er orða mas,
ef enginn koma þar grey,
í Gullbjarnarey.
Sést ei ráð fyrir sand eða bras
sundið yfir að brúa.
Vænt er útí Bjarnarey að búa.
